Greining og ráðgjöf
Við kortleggjum ferla, gögn og kerfi og skilum skriflegri tillögu: hvað á heima í Dynamics 365, hvað í Dataverse og hvað á að vera í friði.
Við hjálpum íslenskum fyrirtækjum að bæta þjónustu, einfalda ferla og ná betri yfirsýn. Við tengjum saman gögn og ferla með Dynamics 365 og Dataverse og nýtum gervigreind þar sem hún kemur að gagni. Stundum er einfaldasta lausnin að nýta betur það sem er þegar til staðar.
Hvert verkefni byrjar á greiningu. Við metum hvaða lausn/ir henta áður en lengra er haldið. Tímarammar eru viðmið; umfang, verð og afhending eru send með tilboði.
Við kortleggjum ferla, gögn og kerfi og skilum skriflegri tillögu: hvað á heima í Dynamics 365, hvað í Dataverse og hvað á að vera í friði.
Sales, Customer Service eða Customer Insights – Journeys, sett upp með ykkar ferlum, gögnum og fólki. Engar skýjaborgir.
Við metum eitt afmarkað verkefni, prófum tilbúna eða sérsniðna agenta og berum árangurinn saman við einfaldari sjálfvirkni. Heimildir, gæði svara og kostnaður eru hluti af matinu.
API, Azure, Power Automate og .NET. Þjóðskrá, bókhaldskerfi, hleðslukerfi, ytri vefir – gögnin flæða þangað sem þau eiga að vera.
Enginn veit hvað er í pípunni fyrr en einhver spyr. Áætlunin er tilfinning.
Beiðni kemur í pósti, fer í Teams, endar í höfðinu á einum starfsmanni.
Sumir nota hann ekkert, aðrir eru farnir að smíða eigin agenta. Enginn veit hvaða gögn þeir sjá eða hvað þetta kostar.
CRM var sett upp fyrir fimm árum af einhverjum sem er hættur. Það veit enginn neitt um það.





30 mínútur þar sem við hlustum, spyrjum og segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum hjálpað.